Íslam - fjórđi hluti

Í stuttu máli sagt má segja ađ í dag sé íslam hinn ríkjandi átrunađur í öllum Miđausturlöndum, ţ.e. í arabaheiminum, í Norđur -Afríku og í löndum Sahara eyđimerkurinnar. Ţar er ţó Ísrael undantekning  og munum viđ fjalla um ástandiđ ţar síđar. Íslömsk menningaráhrif teygja sig  yfir Vestur-Afríku, hluta Austur-Afríku eđa allt ţangađ sem nú er .i.Kenya;, .i.Iran ;og A.i.fganistan;, Miđ-Asíu-löndin , Norđur og Norđ-Austur Indland, .i.Malasíu; og .i.Indókína;. Á Indlandi stóđ ríki múslíma  hvađ hćst á valdatíma Mogulanna á 16. og 17. öld og ţađan er komin súfi stefnan sem er einskonar sambland af íslamskri eingyđistrú og hindúasiđ. Á suđur landamćrum Evrópu hertóku hersveitir múslíma  Konstantínópel áriđ 1453 eins og fyrr segir og síđar allan Balkanskagann . Var ţá nafni Konstantínópel breytt í .i.Ístanbúl;, sem sagan segir ađ sé dregiđ af neyđarópi borgarbúa er ţeir sáu Tyrki streyma inn í borgina, en ţađ hljómađi svo “eis ten polin” á grísku. Undir Ottómönum í Tyrklandi sátu hersveitir múslíma síđast um  Vínarborg í lok 17. aldar.  Enn eru margir múslímar búsettir á Balkanskaganum og vćri hćgt ađ fjalla í löngu máli um ţá hörmungarsögu sem ţar hefur átt sér stađ síđan á 16. öld.

         Sömuleiđis eru fylgendur  íslam stór og áberandi minnihlutahópur  í .i.Taílandi;, .i.Filipseyjum;, .i.Kína;, .i.Madagaskar;, og Tansaníu. Ţađ má segja ađ hin íslömsku lönd myndi einskonar hálfmána frá Indónesíu í austri ađ Madagaskar á Afríkuströndinni í vestri enda eru ţessi lönd oft kölluđ lönd hálfmánans, en hálfmáninn er tákn íslam..

         Eins og sést á ţessari upptalningu  liggja flest lönd múslíma utan sjálfs arabaheimsins ţó ađ áhrif arabamenningarinnar séu auđvitađ sterk, enda trúarrit íslam, Kóraninn, ritađur á arabísku. Fjölmennustu lönd hins múslímska menningarheims liggja í Suđ-Austur-Asíu, ţ.e. Indónesía, Pakistan og Bangaladesh.

         Íslam náđi ekki ađeins skjótri útbreiđslu ţegar í upphafi vegna dugnađar araba í hernađi og upplausnarinnar sem ríkti í Evrópu og Persíu. Sjálfur átrúnađurinn hafđi líka margt fram ađ fćra og bođskapurinn ţjappađi Aröbum saman enda einfaldur og öllum skiljanlegur.  Múslímar lutu ţannig einum leiđtoga, Múhameđ, höfđu eitt  trúarrit sem allt byggđi á, Kóraninn, og buđu fram skipulag og öryggi ţegar upplausn ríkti í Evrópu vegna ţjóđflutninga. En ţó útbreiđsla hins múslímska ţjóđskipulags hafi veriđ skjót, tók ţađ auđvitađ lengri tíma ađ fá hinar sigruđu ţjóđir til ţess ađ taka trúna. Meira ađ segja í ţeim löndum viđ botn Miđjarđarhafsins er teljast kjarnasvćđi íslam, er stór hluti ţegnanna enn í dag kristinn og í löndunum sunnan Sahara berast kristnir ţjóđflokkar og íslamskir á banaspjótum. Í öđrum löndum eru ţeir sem játa íslam ađeins stór minnihluti, til dćmis á Balkanskaganum eins og átökin milli múslíma og kristinna ţar hafa sýnt á undanförnum árum. Um ţessar mundir sćkir íslam hvađ hrađast fram í Afríku og einnig međal ţjóđfélagshópa af afrískum uppruna í Bandaríkjum Norđur-Ameríku. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Þórhallur Heimisson

Höfundur

Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson

Höfundur er sóknarprestur í Breiðholtskirkju og hefur stundað hjóna og fjölskylduráðgjöf um árabil. Hann hefur einnig stundað framhaldsnám í trúarbragðafræði 

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ISIS
  • image
  • image
  • Breiðholtskirkja vetur
  • 12308174 10206547354895816 7660961963820362976 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 8776

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband