Færsluflokkur: Bloggar

Uppskrift að góðu hjónabandi - fyrir Valentínusardaginn

Heart 

Uppskrift að góðu hjónabandi: 

Hér kemur uppskrift að góðu hjónabandi sem gott er að baka alla daga - en auðvitað best að baka á Valentínusardeginum, Bóndadeginum, Konudeginum eða öðrum dögum undir merkjum ástarinnar.
Heart

 

2 bollar af ást
2 bollar af trausti 
2 bollar af hreinskilni 
1 bolli umhyggja fyrir hvort öðru
3 dl húmor
4 dl gott kynlíf
175 g mjúk vinátta
1 ½ dl fyrirgefning, gefin og þegin
3 stórar msk. af virðingu
2 tsk. gagnkvæmur skilningur
slatti af frelsi
slatti af hrósi 
bragðbætis með snertingu

Aðferð:

Hrærið öllu varlega saman í stórri skál. Gefið ykkur góðan tíma því annars er hætta á að eitthvað af þurrefnunum gleymist eða hlaupi í kekki. Hellið í fat eða ílát sem ykkur þykir báðum vænt um. Bakið í vinalegu umhverfi og eins lengi og þurfa þykir. Hægt er að krydda og skreyta kökuna eftir smekk. Það breytir ekki sjálfri kökunni en útkoman verður skemmtilegri og persónulegri. Ekki skaðar að setja krem ofaná að eigin vali. Munið að tala saman um baksturinn því annars brennur allt við í ofninum.

Berist fram í tíma og ótíma, með bros á vör 


Verði ykkur að góðu!


Örfá pláss laus á næsta hjónanámskeið

Jæja, þá er komið fram yfir fyrstu viku febrúarnánaðar og styttist óðum í næsta námskeið sem verður haldið 28. febrúar næstkomandi eins og ég hef áður sagt frá hér á þessu bloggi.

Það verður eina námskeiðið á Íslandi í vor.

Að venju er áhuginn mikill á námskeiðinu og allt að fyllast. Enda mörg pör sem vilja nýta tækifærið til að styrkja og efla samband sitt.

Hvað um það. 

Örfá pláss eru enn laus og geta áhugasöm pör skráð sig á thorhallur33@gmail.com. 

   

Myndin sem fylgir er af íssporinu á vatninu Runn þar sem ég bý í Svíþjóð. Því miður hafa ísarnir ekki verið upp á sitt besta í vetur. En vonandi fer nú að frysta ærlega svo maður komist út á ísinn áður en fer að vora.

IMG_0726


Kynlíf , - 9 leiðir til aukinnar ánægju og vellíðunar.

 IMG_0726

 

 

Eins og þú efalaust veist af fréttum og ef til vill af eigin reynslu þá veldur kynhvötin oft miklum erfiðleikum hjá okkur nútímamönnunum.  Þrátt fyrir mikla umræðu og framfarir víða um heim eru konur víða beittar kynlífskúgun, kynlífssala og misnotkun er beitt gagnvart börnum, konum og varnarlausum fórnarlömbum, og hættulegir kynsjúkdómar eins og eyðni grassera. Önnur einkenni kynlífsvandans endurspeglast í hómófóbíu ákveðinna hópa samfélagsins (hómófóbía=sjúklegur ótti við samkynhneigða), og ranghugmynda um kynlíf og ást sem glanstímarit, kynlífsblöð og fjölmiðlaiðnaðurinn framleiða til að græða peninga.

Á hinn bóginn berast okkur margar bjartar og góðar fréttir af kynlífinu og því sem kynferði mannsins tengist. Vaxandi hluti ungs fólks lítur á kynlífið sem tákn um gagnkvæma ást og virðingu, eitthvað sem báðir aðilar í sambandi elskenda eiga að njóta af saman. Rannsóknir sýna að heilbrigt kynlíf í góðu sambandi eykur vellíðan einstaklingsins og lífslíkur. Lífið verður ekki aðeins lengra hjá þeim sem njóta góðs kynlífs með ástinni sinni, gæði lífsins verða líka betri. Það hvernig þú lítur á kynferði þitt og hvernig þú lifir kynlífi þínu endurspeglast í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur á lífsleiðinni - til góðs og ills. Kynlífið verður aflvaki og eykur gæði lífsins mest í föstu ástarsambandi þar sem gagnkvæm virðing ríkir, umhyggja og blíða eru höfð að leiðarljósi og báðir aðilar sambandsins vilja leggja sitt að mörkum til þess að makinn fái vaxið og dafnað.

Til allrar hamingju hafa mörg skref verið stigin til þess að efla heilbrigði kynlífsins á undanförnum áratugum. Kynlíf er ekki lengur feimnismál og margir njóta kynlífsins til fullnustu. Margar konur hafa uppgötvað unaðssemdir kynlífsins sem áður voru þeim bannaðar. Og margir karlar hafa losað sig við bælandi hugmyndir um kynlífið sem einhverskonar tákn karlmennskunnar, en njóta þess í staðinn að taka þátt í kynlífinu með maka sínum, en ekki á forsendum karlímyndarinnar.

Kynhegðun er á margan hátt lærð, hluti af uppeldi okkar og þeim normum sem samfélagið vandi okkur við í bernsku og æsku. Þess vegna er líka hægt að losa sig við bældar og brenglaðar kynlífshugmyndir en læra upp á nýtt hvað það er að vera kynvera. Margir hafa valið þennan kost bæði á námskeiðum og í meðferðum hjá kynlífsfræðingum og fjölskylduráðgjöfum.

 

 

Fræðsla um kynlíf og leiðir til að auka vellíðan í kynlífinu og samskiptafræðsla hefur hjálpað mörgum að sleppa úr viðjum bælandi kynlífs. Aukin fræðsla losar líka um fordóma gagnvart kynlífi og gagnvart þeim sem í kynhegðun sinni falla ekki að hefðbundnum kynhlutverk.

Kynlíf er ekki aðeins hormónastarfsemi. Kynlíf er líka aðferð til að fullnægja margskonar persónulegum þörfum og fá útrás fyrir innstu tilfinningar sínar. Sumar þessara þarfa eru hollar og uppbyggjandi, eins og til dæmis þörfin fyrir ást, hlýju, nærveru, snertingu, umhyggju og líkamlega fullnægju sem nær handan tíma og rúms. Aðrar þarfir geta verið særandi og brenglaðar, eins og þörfin fyrir að stjórna, sigra, meiða, styrkja eigið sjálfsálit, eða þörfin fyrir að sanna sig sem karl eða kona.

Hér fylgja nokkrar leiðir sem hægt er að fara til að auka ánægjuna og vellíðan í kynlífinu. Engin þeirra er algild en þú / þið sem lesið þetta getið ef til vill fundið eitthvað hér sem styrkir ykkar samband, ást og kynlíf.

1.Ræktaðu ástarsamband þitt við maka þinn á öllum sviðum, þannig að vinátta ykkar geti vaxið og gagnkvæm umhyggja ykkar aukist.
 
Í traustum samböndum er kynlífið ofið inn í öll samskiptin sem eiga sér stað. Ef sambandið er gott og vinátta og skilningur ríkir, eru líkurnar miklar á því að kynlífið sé fullnægjandi fyrir báða aðila. Ef sambandið er slæmt, fullt af togstreitu og spennu, þá verður kynlífið það líka. Kynlífið byrjar ekki í kynfærunum, heldur í höfðinu.
 
2.Einbeittu þér að því að auka og dýfka innileikann í sambandi ykkar og þá mun innileikinn í kynlífinu líka aukast.

Þetta er tilbrigði við það sem nefnt var hér að ofan.
 
3.Gerðu hreint fyrir þínum dyrum reglulega. Talið um tilfinningar ykkar, gerið upp óleyst deilumál, spennu, særandi hugsanir og orð.

Þetta á sérstaklega við ef þið hafið sært hvort annað og kynlífið er farið að líða af þeim sökum. Að þegja þunnu hljóði yfir tilfinningum sínum og bæla niður reiði og spennu er einn helsti orsakavaldurinn fyrir erfiðleikum í kynlífi. Í stað þess að tala um hlutina er kynlífinu beitt í refsingarskyni. Það verður að leysa úr vandamálum líka þeim sem tengjast mismunandi þörfum í kynlífinu.
 
4. Gerðu allt sem í þínu valdi stendur til þess að samband ykkar byggist á réttlæti og jöfnuði og að tækifæri ykkar til vaxtar séu hin sömu.

Ef þú gerir þetta mun nálægð ykkar í kynlífinu aukast sem á öðrum sviðum. Ekkert samband er eins fullnægjandi og samband tveggja jafningja. Jafningjar berjast ekki um völdin í sambandinu, þeir fara ekki í stríðsleik né reyna að koma hinum aðilanum á kné.
 
5. Leyfðu barninu í þér að leika sér sem oftast.

Ein besta leiðin fyrir par sem upplifir spennu og erfiðleika í kynlífinu er að hlæja saman. Hláturinn losar um öll bönd og húmorinn mýkir samskiptin. Tökum ekki hvort annað of hátíðlega. Kynlíf er besti leikur sem hægt er að hugsa sér. Leikum okkur í kynlífinu. Í heilbrigðu kynlífi leyfum við barninu innra með okkur að fá frí frá annríki hversdagsins og spennutreyjunni sem fullorðinsgríman setur á okkur.
 
6. Nýttu þér aðferðir kynlífsmeðferðar og kynlífsfræðinnar ef vandamálin í kynlífinu eru orðin djúpstæð.

Oft endurspeglar dvínandi áhugi á kynlífi dýpri sálfræðileg vandamál í sambandinu eða hjá einstaklingunum. Vandinn getur átt sér djúpar rætur. Hann getur líka stafað af bældu uppeldi, brengluðum skoðunum, kvíða eða öðru því sem hemur gleði kynlífsins. Hjá meðferðaraðilum tekst mörgum að losna undan þessari byrði.
 
7. Leyfðu líkama þínum að njóta sín í kynlífinu.

Ekki vera hrædd við að prófa eitthvað nýtt í kynlífinu, svo fremi þið séuð bæði sátt við það og með á nótunum. Kannið líkama ykkar og hvað það er sem veitir ykkur báðum mestan unað.
 
8. Uppgötvaðu rómantíkina í sambandinu þínu, einmitt eins og það er núna.

Góðu fréttirnar frá rannsóknum kynlífsfræðinga að undanförnu eru að það er aldrei of seint að njóta kynlífsins. “Use it and you won´t lose it” eða notaðu það og þú missir það ekki, er gott ráð sem bandarískir kynlífsfræðingar gefa. Þetta á reyndar við um allt sem að líkamanum og andanum snýr, líka ástina og rómantíkina. Margir halda að kynlíf og rómantík sé bara eitthvað fyrir unga fólkið.

Þetta er mikill misskilningur. Þroski og gagnkvæm ást, umhyggja og nánd eykur vellíðan kynlífsins eftir því sem árin færast yfir og parið kynnist betur. Það er sérstök rómantík fólgin í því að líta saman yfir farinn veg og uppgötva allt það sem maður hefur átt í meðlæti og mótlæti.

9. Hugsaðu betur um líkama þinn og kynlífið mun án efa fara batnandi.

Að halda líkamanum hraustum með æfingum, hollri hreyfingu og góðu mataræði er ein af forsendunum fyrir því að kynlífið sé gott. Þetta á sérstaklega við þegar komið er á 50. aldurinn og þar yfir. Reykingar og óhófleg áfengisneysla að ekki sé talað um önnur eiturlyf draga úr kynlöngun og kynhvöt og geta gert líkamann óhæfan til þess að stunda kynlíf. 

 Um allt þetta og margt fleira fjöllum við á hjónanámskeiðinu 28. febrúar. Ef þú vilt vita meira skráðu þig þá á thorhallur33@gmail.com


Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð í safnaðarheimili Háteigskirkju 28. febrúar næstkomandi



Vegna mikillrar eftirspurnar verður boðið upp á námskeið fyrir hjón og sambúðarfólk í safnaðarheimili Háteigskirkju 28.febrúar næstkomandi.

Um er að ræða hjónanámskeið sem haldið hefur verið um öll Norðurlöndundanfarin 19 ár.

Aðeins verður um eitt námskeið að ræða að þessu sinni hér á landi.

Farið verður í gegnum helstu hættur sem að hjónabandi og sambúð steðja í dag og leiðir til að varast þær.

Námskeiðið hefst kl.20.00

Markmið kvöldsins eru:

Að kveikja ferskar hugmyndir
Að finna nýjar leiðir
Að gera gott samband betra
Að skoða leiðir til að styrkja samskiptin
Að njóta kvöldsins með ástinni sinni.


Í lok kvöldsins fá öll pör með heim 7 vikna æfingarbók með leiðum til að styrkja sambandið enn frekar.

Skráning og upplýsingar hjá thorhallur33@gmail.com eða í síma 8917562

« Fyrri síða

Um bloggið

Þórhallur Heimisson

Höfundur

Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson

Höfundur er sóknarprestur í Breiðholtskirkju og hefur stundað hjóna og fjölskylduráðgjöf um árabil. Hann hefur einnig stundað framhaldsnám í trúarbragðafræði 

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ISIS
  • image
  • image
  • Breiðholtskirkja vetur
  • 12308174 10206547354895816 7660961963820362976 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband